Endurvinnslustöð
Endurvinnslustöðin

Sævarhöfða

110, Reykjavík

Endurvinnslustöðvar SORPU eru fyrir heimili og smærri fyrirtæki. Markmið þeirra er að koma sem mestum úrgangi til endurnýtingar eða endurvinnslu.

Efnismiðlun, nytjamarkaður fyrir notuð byggingarefni og ýmsar vörur sem geta nýst til framkvæmda og listsköpunar er á Sævarhöfða. Smelltu hér til að sjá afgreiðslutíma Efnismiðlunar og aðrar upplýsingar um markaðinn.

Móttökuskilmálar

  • Úrgangur skal vera flokkaður við skil á endurvinnslustöð. Rúmmálsminnkun úrgangsins þýðir lægri kostnað vegna gjaldskylds úrgangs, betri nýtingu gáma, minni akstur og minni umhverfisáhrif.
  • Æskilegt er að farmar séu ekki stærri en 2m3 til að tryggja flæði innan stöðvanna. Viðskiptavinum SORPU með stærri farma er bent á að nýta þjónustu móttöku- og flokkunarstöðvar í Gufunesi eða urðunarstaðarins í Álfsnesi.​
  • Vegna kostnaðar við óflokkaðan úrgang er lagt 500 króna álagsgjald á hvern svartan poka sem kemur inn á endurvinnslustöðvar SORPU.
  • Hér má finna reglur endurvinnslustöðva SORPU.

Afgreiðsluferli

  1. Starfsmaður tekur á móti viðskiptavini í hliði við komu á endurvinnslustöð. Viðskiptavinur gerir grein fyrir úrgangstegundum sem komið er með á stöðina.
  2. Greitt er fyrir gjaldskyldan úrgang eftir rúmmáli, sé um slíkan úrgang að ræða.
  3. Úrgangur er losaður í viðeigandi gáma samkvæmt leiðbeiningum starfsmanns.

Grænir skátar

​Á öllum endurvinnslustöðvum SORPU er söfnunargámur frá Skátahreyfingunni þar sem hægt er að gefa skilagjaldsskyldar umbúðir til styrktar starfseminni. Umbúðirnar þurfa hvorki að vera flokkaðar né taldar.

Gjaldskrá

Gjaldskrá SORPU má finna hér.