Chat with us, powered by LiveChat
Ónothæfur textíll

Ónothæfur textíll

Föt og klæði mega vera rifin eða slitin þar sem þau nýtast þá til endurvinnslu. Ónothæfur textíll flokkast með öðrum textíl.

Föt og klæði mega vera rifin eða slitin þar sem þau nýtast þá til endurvinnslu. Ónothæfur textíll flokkast með öðrum textíl.

Hvað verður um efnið

Fötum, skóm og klæðum er pakkað í textílflokkunaraðstöðu SORPU á Köllunarklettsvegi. Efnið er flutt til fataflokkunarstöðva í Danmörku og Þýskalandi þar sem það er flokkað í endurnot, endurvinnslu og afgangurinn í orkuvinnslu.

Hluti af efninu fer í endurnot og endurnýtingu til Góða hirðisins, nytjamarkaðs SORPU og eins til Rauða krossins og fleiri smærri aðila.

Slitið klæði nýtist einnig en það er endurunnið og úr því framleiddar tuskur og teppi, svo eitthvað sé nefnt. Allur textíll á því að fara í söfnunargáma fyrir textíl.