Chat with us, powered by LiveChat

SORPA í tölum

Hér má sjá mælaborð sem sýnir okkur hvernig sveitarfélögin eru að standa sig í flokkun úrgangs. Þetta mælaborð hjálpar okkur að fylgjast með framvindu mála hvað varðar flokkun á blönduðum úrgangi, matarleifum, pappír og pappa og plasti. Markmið okkar er alltaf að draga úr úrgangsmyndun, auka endurnot og endurvinnslu með betri flokkun, og skila öllu því sem kemur rétt flokkað til okkar í réttan farveg.

Hér er hægt að skoða þróunina í heildarmagni úr tunnum eftir árum, annars vegar sem hlutfall mismunandi flokka og hins vegar í magni.

Stuðst er við íbúafjöldatölur á fjórða ársfjórðungi hvers árs á hagstofan.is.

Ath. SORPA hefur aðeins gögn um magn plastumbúða og pappírs frá Kópavogi frá ágúst 2024. Fyrir þann tíma fóru þessir úrgangsflokkar til endurvinnslu í gegnum aðra aðila.