Pappír

Pappír

Pressið umbúðirnar vel saman. Það sparar pláss og dregur úr akstri. Fjarlægja ber aðskotahluti, t.d. plast eða matarleifar, sem rýra endurvinnslugildi efnisins. Plasttappar mega þó fara með fernum og ekki þarf að rífa plastglugga eða límrönd af umslögum. Hefti, bréfaklemmur og smærri gormar mega fara með. Engir plastpokar!

Athugið að á endurvinnslustöðvum er bylgjupappi flokkaður í sérstaka gáma og haldið aðskildum frá öðrum pappír og pappaumbúðum.

Ertu með meira en 2m3?

Það er líka tekið við pappír og pappa í móttöku- og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi.

Hvað verður um efnið

Efnið er pressað og baggað í móttöku-og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi til að draga úr rúmmáli. Það er síðan flutt til STENA í Svíþjóð til frekari flokkunar, flokkunin samanstendur af bylgjupappa, sléttum pappír/dagblöðum og fernum/rakaþolnum pappaumbúðum sem fer svo til sértækrar endurvinnslu. Eftir flokkunina sendir STENA fernurnar til Fiskeby þar sem fernurnar eru endurunnar.