Flokkun frá fyrirtækjum

Fyrirtæki

Blanda af pappír og umbúðum úr sléttum pappa og bylgjupappa

​Fjarlægja ber aðskotahluti, t.d. plast eða matarleifar, sem rýra endurvinnslugildi efnisins. Plasttappar mega þó fara með fernum og ekki þarf að rífa plastglugga eða límrönd af umslögum. Hefti, bréfaklemmur og smærri gormar mega fara með. Engir plastpokar!

Það er einnig tekið við pappír og pappa á endurvinnslustöðvum SORPU.

Hvað verður um efnið

​Efnið er pressað og baggað í móttöku-og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi til að draga úr rúmmáli. Það er síðan flutt til STENA í Svíþjóð til frekari flokkunar, flokkunin samanstendur af bylgjupappa, sléttum pappír/dagblöðum og fernum/rakaþolnum pappaumbúðum sem fer svo til sértækrar endurvinnslu. Eftir flokkunina sendir STENA fernurnar til Fiskeby þar sem fernurnar eru endurunnar.