Mikilvægt er að flokka frá úrgang sem tilheyrir öðrum flokkum, t.d. pappír og pappa, gifs, plast, spilliefni o.s.frv.
Þegar blönduðum úrgangi er skilað á endurvinnslustöð skal hann vera í glærum pokum. Það hjálpar starfsfólki SORPU að leiðbeina við flokkun.

Það er einnig tekið við pressanlegum úrgangi frá framkvæmdum á endurvinnslustöðvum SORPU.
Efnið er hakkað í móttöku- og flokkunarstöðinni í Gufunesi.
Það gerir m.a. kleift að endurheimta málmhluti með vélrænni flokkun. Afgangurinn er síðan baggaður og urðaður á urðunarstaðnum í Álfsnesi þar sem hauggasi sem myndast við niðurbrot lífræns efnis er safnað. Gasið er hreinsað og nýtt sem eldsneyti á ökutæki.