Flokkun frá fyrirtækjum

Fyrirtæki

Hart plast án úrvinnslugjalds

​Í flokkinn mega fara allar plastumbúðir, bæði úr mjúku og hörðu plasti, sem og plast sem ekki ber úrvinnslugjald.

Athugið að leikföng sem ganga fyrir rafmagni eða rafhlöðum fara í raftækjagám á endurvinnslustöðvum.
Umbúðir þurfa að vera tómar og æskilegt er að skola þær svo ekki komi ólykt við geymslu. Gott er að stafla saman eða rúmmálsminnka á annan hátt til að nýta pláss sem best og draga úr akstri.

Hvernig getur maður vitað hvort umbúðir eru plast eða ál, t.d. kaffi- og snakkpokar?

Þumalputtareglan er sú að ef þú krumpar það saman og það sprettur út aftur er það plast, ef það helst samankrumpað er það ál.

Hvað verður um efnið

Efnið er pressað og baggað í móttöku- og flokkunarstöð SORPU til að draga úr rúmmáli og síðan flutt til Svíþjóðar. Þar er plastið flokkað eftir tegundum. Plasttegundirnar PET, LDPE, HDPE og PP (oftast merkt með númerunum 1, 2, 4 og 5 í endurvinnsluþríhyrningi) fara til endurvinnslu. Einnig samsett filma úr PP/PE. Plast af öðrum tegundum, s.s. PVC, PS og EPS og umbúðir sem eru lamineraðar, svartar eða samsettar úr fleiri en einni tegund plasts eru aðeins hæfar til orkuvinnslu þegar þær koma í bland við aðrar plasttegundir. Þær nýtast þá til varma- og rafmagnsframleiðslu í Svíþjóð.