Flokkun frá fyrirtækjum

Fyrirtæki

Umbúðir úr bylgjupappa

​​​Í flokkinn má fara allur bylgjupappi sem ber úrvinnslugjald.

Bylgjupappinn má vera áprentaður, plasthúðaður og litsterkur. Límbönd og hefti mega fylgja. Fjarlægja ber aðskotahluti, t.d. plast eða matarleifar, sem rýra endurvinnslugildi efnisins.

Það er einnig tekið við bylgjupappa á endurvinnslustöðvum SORPU.

Hvað verður um efnið

​Efnið er pressað og baggað í móttöku-og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi til að draga úr rúmmáli. Það er síðan flutt til Hollands til endurvinnslu.