Trjágreinar

Trjágreinar

Í flokkinn fara trjágreinar án aðskotahluta. Athugið að losa efnið úr plastpokum.

Í flokkinn fara trjágreinar án aðskotahluta. Athugið að losa efnið úr plastpokum.

Ertu með meira en 2m3?

Það er líka tekið við trjágreinum í móttöku- og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi og á urðunarstað í Álfsnesi.

Hvað verður um efnið

Efnið nýtist sem stoðefni í jarðgerð í GAJA, gas- og jarðgerðarstöð SORPU í Álfsnesi. Stoðefnin hafa mikilvægu hlutverki að gegna í vinnsluferli lífræns eldhússúrgangs, s.s. að greiða leið meltuvökva í gegnum úrganginn, viðhalda raka, tryggja loftun í jarðgerðarferlinu og sjá lífrænum ferlum fyrir kolefni. Frásigtuð stoðefni eru endurnýtt.