Allar matarleifar eiga að fara í bréfpoka og svo í tunnu sem er merkt matarleifar. Til matarleifa flokkast öll matvæli sem falla til í eldhúsinu, svo sem ávaxtahýði, eggjaskurn, matarleifar með beini, fiskiúrgangur o.fl. Einnig mega afskorin blóm fara með.

Efnið er flutt í GAJU, gas- og jarðgerðarstöð SORPU og er þar unnið í metangas og jarðvegsbæti (moltu). Moltan frá GAJU er útimolta sem má nota í garðverkunum, til uppgræðslu eða skógræktar.