Við erum að hefja sérsöfnun á matarolíu á endurvinnslustöðvum SORPU. Öll olía og feiti býr yfir orku sem hægt er að endurnýta: steikingarolía, afgangar í ostakrukkum, djúpsteikingarfeiti, smjör og tólg.
Besti kosturinn er að safna olíunni á flöskur og koma þeim á næstu endurvinnslustöð Sorpu, sem sér um að gefa orkunni sem býr í olíunni framhaldslíf.
Safna skal matarolíu á plastbrúsa og flöskur og skila inn í spilliefnamóttöku.
Endurvinnslustöðvar taka við matarolíu frá heimilum, fyrirtækjum er bent á að skila til viðurkenndra móttökuaðila.

Matarolían er fyrirtaks endurvinnsluefni og miklivægt að láta ekki dýrmætt efni fara til spillis og valda skaða í frárennslisrörum og umhverfinu. Flokkuð matarolía sem berst til SORPU er send erlendis þar sem hún er notuð í framleiðslu á lífdísil.