Málað timbur

Málað timbur

Í flokkinn fer allt timbur sem er málað eða plasthúðað. Einnig timbur með þekjandi viðarvörn. Naglar, skrúfur og aðrir minni málmhlutir mega fara með.

Athugið að farmar mega ekki innihalda annað efni í einhverju magni, t.d. gler, plast, o.s.frv.

Hægt er að skila nothæfu timbri á svæði Efnismiðlunar sem er á öllum endurvinnslustöðvum SORPU.

Nothæfum húsgögnum er hægt að skila í nytjagám Góða hirðisins.

Ertu með meira en 2m3?

Það er líka tekið við og máluðu timbri á urðunarstað SORPU í Álfsnesi.

  • Af hverju er gjaldskylda á sumum úrgangsflokkum?

    Íbúar greiða fyrir losun úrgangs frá daglegum heimilisrekstri í gegnum sorphirðugjöld. Úrgangur frá framkvæmdum fellur ekki þar undir og því greiða íbúar fyrir hann við losun á endurvinnslustöð.

    Rekstraraðilar hafa ekki greitt sorphirðugjöld til sveitarfélaga og greiða því fyrir losun flestra úrgangstegunda.

Hvað verður um efnið

Tekið er á móti efninu á urðunarstaðnum í Álfsnesi​​. Það gerir m.a. kleift að endurheimta málmhluti með vélrænni flokkun.