Flokkun frá fyrirtækjum

Fyrirtæki

Umbúðir úr sléttum pappa

​Í flokkinn má fara allur sléttur pappi sem ber úrvinnslugjald.
Pressið umbúðirnar vel saman. Það sparar pláss og dregur úr akstri.
Plasttappar mega fara með fernum.
Fjarlægja ber aðskotahluti, t.d. plast eða matarleifar, sem
rýra endurvinnslugildi efnisins.

Það er líka tekið við sléttum pappa á endurvinnslustöðvum SORPU.

Hvað verður um efnið

​Efnið er pressað og baggað í móttöku-og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi til að draga úr rúmmáli. Það er síðan flutt til STENA í Svíþjóð til frekari flokkunar, flokkunin samanstendur af bylgjupappa, sléttum pappír/dagblöðum og fernum/rakaþolnum pappaumbúðum sem fer svo til sértækrar endurvinnslu. Eftir flokkunina sendir STENA fernurnar til Fiskeby þar sem fernurnar eru endurunnar.