11. apríl 2024

Vilt þú moltu?

Við fögnum sumardeginum fyrsta og um leið fyrstu uppskerunni af næringarríkri moltu og bjóðum upp á ókeypis moltu og í opið hús í GAJU sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl.

Þetta er spennandi tækifæri til að forvitnast um ferðalag matarleifanna um jarðgerðarstöðina en á síðasta ári flokkuðu íbúar höfuðborgarsvæðisins og nágrennis um 10.500 tonn af lífrænum úrgangi - það er ekkert smá vel gert!

D A G S K R Á 11:00-15:00

Leiðsögn um stöðina á hálftíma fresti

Stjörnu Sævar verður með fræðslu fyrir yngsta fólkið – hefst kl. 13.00

Sérfræðingar frá Grasagarði Reykjavíkur veita fræðslu um moltu

Boðið verður upp á pylsur og gos meðan birgðir endast

Öllum velkomið að mæta með kerru, fötu eða fjölnota poka og ná sér í moltu fyrir vorverkin í garðinum, endurgjaldslaust!

Hlökkum til að sjá þig!

Nýjustu fréttir