Chat with us, powered by LiveChat
4. nóvember 2026

Brennsla á hauggasi í Álfsnesi

Við erum stöðugt að leita leiða til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar í Álfsnesi. Nýjasta viðbótin er kyndill sem hjálpar okkur að takast á við metangas sem myndast þegar úrgangur brotnar niður.

Í Álfsnesi söfnum við hauggasi og nýtum það til metanframleiðslu. En ekki er allt gasið hæft til slíkrar vinnslu. Þar kemur nýi kyndillinn til sögunnar!

Kyndillinn brennir því hauggasi sem ekki er hægt að nýta og kemur þannig í veg fyrir að metanið sleppi óbrennt út í andrúmsloftið. Við brennsluna breytist metanið að mestu í koltvísýring og vatnsgufu sem hafa mun minni loftslagsáhrif. Kyndillinn dregur einnig úr lykt og eykur öryggi á svæðinu.

Verkefnið er unnið í samstarfi við ReSource International og kyndillinn er framleiddur af breska fyrirtækinu Landfill Systems.

Þótt markmiðið sé að sem minnstur úrgangur endi í urðun skiptir ekki síður máli að draga úr umhverfisáhrifum þess úrgangs sem þegar er þar. Nýi kyndillinn er enn eitt skrefið í þá átt.

Nýjustu fréttir