Á haustmánuðum tókum við hjá SORPU í notkun nýja fataflokkunarstöð sem er staðsett við Köllunarklettsveg við hlið Góða hirðisins. Þetta er stórbætt aðstaða með nýjum vélbúnaði sem gerir okkur kleift að flokka betur. Þangað berst allur textíll og föt sem fólk hefur flokkað og skilað til okkar í fata- og textílgáma.
Takmarkið er fyrst og fremst að auka endurnotkun hér innanlands. Það sem ekki fer í endurnotkun hér heima fer í endurnýtingu erlendis. Við höfum eflt gott samstarf við evrópskar fataflokkunarverðsmiðjur þar sem sjálfbærni og gagnsæi er í fyrirrúmi.
Framboð og endurnotkun á vænum, góðum og notuðum fötum hefur stóraukist í Góða hirðinum og öðrum verslunum. Þetta er einföld og öflug leið til þess að minnka mengun og losun gróðurhúsaloftegunda – en líka góð og skemmtileg leið til að spara pening!
Ný og bætt fataflokkun hefur eflt samstarf og stuðning við nemendur, sprotafyrirtæki og frumkvöðla í fatahönnun og textílvinnslu.
Munum að setja góð, hrein og þurr föt í poka þegar við flokkum.
Takk fyrir að flokka föt!