Í mars á voru endurvinnslustöðvarnar við Dalveg og Jafnasel skilgreindar sem litlar endurvinnslustöðvar. Þannig gat SORPA aukið öryggi á stöðvunum, bætt flæði um þær og leiðbeint viðskiptavinum með stærri og þyngri efnisflokka á stórar stöðvar, sérstaklega stöðvarnar við Breiðhellu og Sævarhöfða, nú Lambhagaveg.
Reynslan af rekstri litlu stöðvanna tveggja er góð. Biðtími á þeim er stuttur og auðveldara en áður fyrir viðskiptavini að athafna sig þegar þeir losa sig við minni úrgang. Viðskiptavinir sem ekki eru í framkvæmdum hafa margir tekið breytingunum fagnandi og upplifa sig öruggari og velkomnari á stöðvunum en áður.
Móttekið magn á stöðvunum hefur dregist saman um 60%, og heimsóknir á morgnana mun færri en eftir hádegið. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að breyta opnunartíma stöðvanna þannig að hann endurspegli betur eftirspurnina eftir þjónustu þeirra og taki breytingum eftir árstíma.
Með þessu næst fram hagræði í rekstri stöðvanna, sem gerir SORPU kleift að þjónusta viðskiptavini enn betur á þeim stöðvum þar sem aðsóknin er mest, og mestur úrgangur berst.
Vetraropnun á Dalvegi og í Jafnaseli tekur gildi 1. nóvember 2026. Áfram verður opið frá 09:00 til 19:00 á stöðvunum í Ánanaustum, Breiðhellu og við Lambhagaveg.