Chat with us, powered by LiveChat
19. nóvember 2026

Góði hirðirinn kallar eftir umsóknum um styrki

Umsóknarferlið fyrir árlega styrkveitingu Góða hirðisins, nytjamarkaðar SORPU, er nú í fullum gangi. Líknar- og félagasamtök eru hvött til að sækja um, en umsóknarfrestur rennur út þann 30. nóvember.

Allur ágóði af sölu nytjahluta í Góða hirðinum rennur til góðra málefna í formi styrkja sem veittir eru í desember og er markmiðið er að styrkja fólk til sjálfshjálpar.

Hver hlutur skiptir máli

Þegar fólk gefur hluti í Góða hirðinn eða verslar þar fá hlutirnir nýtt líf, og ágóðinn rennur um leið til samfélagsins. Þannig haldast umhverfisvernd og samfélagslegur stuðningur í hendur. Í fyrra bárust um 70 umsóknir og úthlutaði Góði hirðirinn samtals rúmum 21 milljón króna í styrki á árinu. Frá upphafi hefur Góði hirðirinn veitt yfir 370 milljónir króna til góðgerðar- og líknarmála.

Hvernig er sótt um?

Umsóknir eru sendar í gegnum form á vefsíðu Góða hirðisins. Styrkirnir verða afhentir í Góða hirðinum þann 12. desember.

Smelltu hér til að sækja um styrk!

Nýjustu fréttir