Chat with us, powered by LiveChat
18. nóvember 2026

Flöskumóttakan á Breiðhellu lokar

Flöskumóttöku Endurvinnslunnar á endurvinnslustöð okkar á Breiðhellu verður lokað um áramótin. Síðasti opnunardagur verður 31. desember.

Lokunin er liður í hagræðingu hjá Endurvinnslunni. Jafnframt er unnið að undirbúningi nýrrar móttökustöðvar við Lambhagaveg, í samstarfi við SORPU, og að aukinni þjónustu í Austurhrauni.

Endurvinnslan bendir viðskiptavinum á móttökustöð sína í Austurhrauni 3 í Garðabæ:

„Í Austurhrauni er betri aðstaða bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk. Þar eru fleiri talningarvélar, sem stytta bið, töluvert fleiri bílastæði og opið alla daga vikunnar. Með því að efla stöðina í Austurhrauni getum við bætt þjónustuna og tekið vel á móti þeim viðskiptavinum sem hafa sótt þjónustu á Breiðhellu,“ segir Jón Óskar Hinriksson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar.

Ekki eru uppi áform um að loka fleiri móttökustöðvum Endurvinnslunnar.

Við þökkum Endurvinnslunni fyrir gott samstarf á Breiðhellu ♻️💚

Nýjustu fréttir