Tískan fer í hringi – látum fötin gera það líka!
Á alþjóðadegi hringrásar í textíl vekur SORPA athygli á mikilvægi þess að lengja líftíma fatnaðar og tryggja að textíll fari í réttan farveg.
Hraðtískan gerir okkur auðveldara en nokkru sinni fyrir að kaupa ný föt og skipta þeim gömlu út. Hver flík á sér flókna sögu áður en hún ratar í fataskápinn okkar. Framleiðslan krefst hráefna, vatns og orku og því skiptir máli að nýta fatnað eins lengi og kostur er.
Hvað verður um fötin sem þú skilar til SORPU?
Textíll sem skilað er í söfnunargáma SORPU fer fyrst í móttökustöð fyrirtækisins þar sem hann er flokkaður. Við reynum að hámarka það sem fer í endurnot innanlands - restinni er pakkað til útflutnings þar sem textíllinn fer til sérhæfðra flokkunarstöðva í Danmörku og Þýskalandi.
Þar er textíllinn flokkaður eftir ástandi og möguleikum til áframhaldandi nýtingar. Nothæfar flíkur geta fengið nýja eigendur, slitinn textíll getur farið í endurvinnslu og sá hluti sem ekki nýtist með öðrum hætti fer í orkuvinnslu.
Hluti textílsins fær einnig framhaldslíf hér heima. SORPA er meðal annars í samstarfi við Góða hirðinn, Rauða krossinn og fleiri aðila um endurnotkun og endurnýtingu textíls hér innanlands.
Ný textílflokkunaraðstaða á Köllunarklettsvegi
Við erum nú á lokametrunum með undirbúning að opnun nýrrar textílflokkunaraðstöðu á Köllunarklettsvegi. Þar verður textíll sem íbúar skila flokkaður eftir gerð og ástandi, svo hægt sé að koma sem mestu aftur í notkun og beina öðru í endurvinnslu. Í nýju aðstöðunni verður aðgengi enn betra en áður, sem gefur tækifæri til að flokka textílinn betur. Það skilar sér svo í aukinni endurnotkun og betri endurvinnslu.
Best er að nota það sem við eigum nú þegar
Þótt flokkun og endurvinnsla skipti miklu máli er besta leiðin til að draga úr umhverfisáhrifum textíls að lengja líftíma hans.
Það þarf ekki alltaf að kaupa nýtt. Stundum nægir að gera við, skipta við aðra eða gefa áfram. Og þegar við þurfum eitthvað nýtt í fataskápinn er vel þess virði að skoða notað fyrst.
Með því að breyta því hvernig við kaupum, notum og skilum frá okkur fötum getum við dregið úr sóun og stuðlað að betri nýtingu auðlinda.