26. júní 2023

Útflutningur á brennanlegum úrgangi hefst á haustmánuðum

Stjórn SORPU hefur falið framkvæmdastjóra að ganga til samninga við Stena Recycling AB um móttöku á brennanlegum úrgangi frá höfuðborgarsvæðinu til brennslu í Svíþjóð. Stefnt er að því að hefja útflutning á brennanlegum úrgangi eftir á haustmánuðum.

Með þessu verður íslenskur úrgangur nýttur til orkuframleiðslu í Svíþjóð í stað þess að hann sé urðaður á Íslandi. Gert er ráð fyrir að flytja út 43.000 tonn af brennanlegum úrgangi árlega til brennslu.

Tilboð Stena var um 35% undir kostnaðaráætlun SORPU fyrir útboðið, sem er mikið fagnaðarefni á verðbólgutímum og dregur úr hækkunaráhrifum bættrar úrgangsmeðhöndlunar á gjaldskrár SORPU.

Útflutningur á brennanlegur úrgangi hefst mun urðun í Álfsnesi dragast saman um 65% á ári miðað við árið 2022 Með útflutningi verður dregið verulega úr urðun á landsvísu og neikvæðum áhrifum urðunarstaðar á nærliggjandi byggðir.

Nýjustu fréttir