Þriðjudaginn 1. september nk. mun SORPA opna nýja endurvinnslustöð við Lambhagaveg 14. Endurvinnslustöðin er fyrsta stöðin sem SORPA hefur haft tækifæri til að byggja og hanna frá grunni og var við hönnun hennar það haft að leiðarljósi að gera heimsóknir bæði öruggari og þægilegri fyrir gesti og starfsfólk.
Hönnuð með öryggi og gott flæði í huga
Nýja stöðin við Lambhagaveg er þannig ólík öðrum endurvinnslustöðvum SORPU. Má þar nefna að umferð um hana verður á tveimur aðskildum akreinum þar sem umferð viðskiptavina verður aðskilin frá gámaflutningabílum og öðrum þjónustutækjum. Markmiðið er að draga úr skörun í umferð og skapa öruggara og skilvirkara umhverfi fyrir bæði gesti og starfsfólk.
Stöðin er jafnframt hringlaga og eru akreinar og gámastæði skipulögð þannig að viðskiptavinir geta ekið greiðlega um stöðina, stoppað við þá gáma þar sem þeir ætla að henda rusli eða öðrum hlutum til endurvinnslu og haldið síðan áfram án þess að teppa umferð annarra. Einnig munu þrjú innkeyrsluhlið inn á stöðina gera heimsóknir hraðari og draga úr biðröðum.
Allir helstu úrgangsflokkar á einum stað
Á Lambhagavegi verður tekið á móti öllum þeim flokkum sem tekið er á móti á stærri endurvinnslustöðvum SORPU. Eins verður Góði hirðirinn með starfsemi á stöðinni, þar sem áhersla verður á framkvæmdaefni og ýmiss konar búnað sem getur nýst við framkvæmdir og viðhald.
Endurvinnslustöðin á Sævarhöfða lokar
Samhliða opnun endurvinnslustöðvarinnar við Lambhaga 14 verður endurvinnslustöðinni við Sævarhöfða lokað og verður síðasti opnunardagur þar sunnudagurinn 30. ágúst. Mánudagurinn 31. ágúst verður nýttur í að flytja starfsemina yfir á nýju stöðina.
Endurvinnslustöðin á Lambhaga verður svo opnuð þriðjudaginn 1. september nk. og er hún opin alla daga frá kl. 9:00 – 19:00.
Hlökkum til að taka á móti ykkur á nýrri og fínni stöð ♻️