Þann 2. – 4. september nk. stöndum við hjá Sorpu fyrir alþjóðlegu ráðstefnunni Nordic Biogas Conference 2026 á Hilton í Reykjavík. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum og er þetta í tíunda sinn sem hún fer fram.
Nordic Biogas Conference er einn helsti vettvangur Norðurlanda fyrir umræðu um lífgas, hringrásarhagkerfi og sjálfbærar orkulausnir. Þar koma saman fyrirtæki, rannsakendur, sveitarfélög, orkufyrirtæki og opinberir aðilar sem vinna að þróun lífgaslausna á Norðurlöndum og víðar.
Á ráðstefnunni verður fjallað um nýjustu þróun og framtíðarsýn í lífgasi og öðrum tengdum lausnum. Sérstök áhersla verður lögð á:
Það er okkur mikill heiður að halda Nordic Biogas Conference í ár og mikil viðurkenning á því starfi sem unnið hefur verið hér á landi á sviði lífrænnar úrgangsvinnslu (þá helst matarleifum) og lífgasframleiðslu. Fyrir okkur er ráðstefnan einnig tækifæri til að kynna íslenskar lausnir og efla alþjóðlegt samstarf um hringrásarhagkerfi og sjálfbæra auðlindanýtingu.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna, dagskrá og skráningu má finna á vef ráðstefnunnar: www.nordicbiogasconference.com.