Chat with us, powered by LiveChat
7. apríl 2026

Viltu moltu? 🌱

Laugardaginn 11. apríl hefjum við dreifingu á ókeypis moltu!

Í ár verður hægt að koma með kerruna í GAJA fyrsta laugardag hvers mánaðar frá 11. apríl til 5. september.

Hvar er GAJA? Smelltu hér til að fá leiðbeiningar á Google Maps.

Komdu með kerruna í GAJU!

Fyrsta laugardag í hverjum mánuði, frá apríl til september, verður hægt að koma til okkar í GAJA, Álfsnesi til að fá ókeypis moltu. Opið verður fyrir afhendingu á moltunni milli klukkan 12:00 – 14:00 dagana 11. apríl, 2. maí, 6. júní, 4. júlí, 1. ágúst og 5. september. Þú einfaldlega kemur með kerruna og við sjáum um að moka brakandi ferskri moltu ofaní.

Takk fyrir að flokka ♻️

SORPA Molta-gamur

Nýjustu fréttir