Ný verslun Góða hirðisins opnaði á Endurvinnslustöð SORPU í Breiðhellu þann 1. júní. Mikil eftirvænting var fyrir opnuninni og fjölmargir mættu strax þegar verslunin opnaði.
Verslunin leggur sérstaka áherslu á framkvæmdarefni og býður meðal annars upp á verkfæri, hurðar, vaska og ýmiss konar efni og búnað sem getur nýst við framkvæmdir og viðhald. Verslunin tekur við hlutverki gömlu efnismiðlunarinnar í Breiðhellu.
Opnun Góða hirðisins í Breiðhellu er liður í því að stuðla að aukinni endurnotkun og gefa hlutunum lengra líf.
Verslunin er opin virka daga frá kl. 11:00 til 15:00 og er staðsett á Endurvinnslustöð SORPU að Breiðhellu 8–10 í Hafnarfirði.
Hlökkum til að sjá þig!
