Aðalfundur SORPU var haldinn á dögunum þar sem farið var yfir helstu tölur og upplýsingar síðasta árs, bæði hvað varðar rekstur og umhverfismál.
💰 Ársreikningur 2025
Ársreikningur 2025 sýnir sterka afkomu í samræmi við áætlanir og hagræðingaraðgerðir sem skiluðu árangri 💪 Traustur efnahagur SORPU styður áframhaldandi uppbyggingu og framtíðarverkefni.
🗑️ Hvað er í ruslinu hjá okkur?
Á hverju ári grömsum við í ruslinu til að fylgjast með því hvernig íbúum gengur að flokka. Blandaður úrgangur eykst um tæp 8% á hvern íbúa milli ára og þar má helst finna meira af matarleifum og plasti heldur en árið á undan en það ár slógu íbúar flokkunarmet. Árið 2025 flokka íbúar um 36 kg í matarleifatunnuna en henda 26 kg af matarleifum í blönduðu tunnuna.
🌏 Umhverfismál
Góðu fréttirnar eru að urðun er orðin hverfandi og losun gróðurhúsalofttegunda vegna starfsemi SORPU dregst saman um 10,8%!
Við erum ánægð með árangurinn á síðasta ári og hlökkum til að gera enn betur núna í ár!
Takk fyrir að flokka! ♻️
Viltu vita meira? Lestu árs- og umhverfisskýrsluna okkar hér 👇