Nú er byrjað að vora, garðarnir að fyllast af lífi og við erum tilbúin í slaginn! 🌱
🗑️ Gámar fyrir gras og lauf
Nú höfum við komið fyrir gámum fyrir gras og lauf á allar endurvinnslustöðvar okkar. Kíktu til okkar með garðaúrganginn og við tökum vel á móti þér.
📍 Garðaúrgangur fer á Dalveg!
Garðaúrgangurinn færist aftur á endurvinnslustöðina á Dalvegi og verður því ekki á Glaðheimasvæðinu eins og síðastliðin ár. Við bendum því öllum grænu fingrum í Kópavogi að koma til okkar á Dalveginn með garðaúrganginn.
Við minnum svo á að nota glæra poka þegar komið er til okkar!
Takk fyrir að flokka ♻️