9. apríl 2024

Góði hirðirinn tilnefndur sem VIRKT fyrirtæki 2023

Við erum stolt að segja frá því að Góði hirðirinn var nú á dögunum tilnefndur sem VIRKT fyrirtæki 2023.

Við álítum það hluta af samfélagslegri ábyrgð okkar að bjóða einstaklingum í gegnum atvinnutengingu VIRK að leggja sitt af mörkum á vinnumarkaði. Rannsóknir hafa sýnt að það að vera með starf er mikilvægt fyrir bæði heilsu og velferð einstaklingsins og því er mikilvægt að auka þátttöku þessa hóps á vinnumarkaði.

Hér má sjá Ruth Einarsdóttir, rekstrarstóra Góða hirðisins og Michelle Marie Morris, umsjónarmann Góða hirðisins taka á móti blómvendi frá Þorsteinni G. Hilmarsson, atvinnutengill frá VIRK.

Við erum þakklát fyrir farsælt og gott samstarf við VIRKT sem við vonum að haldi áfram að vaxa og dafna í framtíðinni.

Nýjustu fréttir