Stefán Pálsson er þekkur fyrir sínar lifandi og skemmtilegu sögugöngur. Nú býður hann ykkur með sér í ruslagöngu um Reyjavík – Af ruslahaugum sögunnar.
Hver er saga ruslsins? Hverju var safnað og hvað var gert við það? Við sögu koma rottur, framsýnt fólk, furðulegar tilviljanir, knattspyrna, skarn og ýmislegt óvænt.
Skellið ykkur í skemmtilega og fræðandi sögugöngu á sunnudegi– hittumst við Hljómskálann í Hljómskálagarðinum (hvernig skyldi hann nú tengjast rusli?)
Sunnudagur 20. september – kl. 13:00 – Gangan endar svo við endurvinnslustöð SORPU við Ánanaust út á Granda.
Öll velkomin! Frítt fyrir alla góða flokkara