Framundan er verslunarmannahelgi og því nokkrar breytingar á hefðbundnum opnunartíma hjá okkur.
- Dagana 2 - 3. ágúst verða endurvinnslustöðvar opnar frá kl.12.00- kl. 18.30.
- Mánudaginn 4. ágúst er svo lokað á endurvinnslustöðvum sem og öllum öðrum starfsstöðvum SORPU.
- Dagana 2 - 4. ágúst er lokað í Góða hirðinum og munum við því ekki ná að losa nytjagáma frá endurvinnslustöðvum um helgina.
Viljum við því biðla til ykkar að koma frekar með nytjahluti til okkar á endurvinnslustöðvar í næstu viku, takk fyrir skilninginn .
Gleðilegan frídag verslunarmanna.