Chat with us, powered by LiveChat
4. ágúst 2020

Vélræn flokkun fyrir plast í pokum hefst á ný

Prófanir á nýjum vinnslulínum í móttökustöð eru nú í fullum gangi og er þess vænst að þær verði komnar í fullan rekstur um miðjan september. Íbúar í þeim sveitarfélögum sem skila plasti í pokum með heimilissorpi geta aftur farið að nýta þann möguleika, en það eru íbúar í Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesi. Ekki verður þó hægt að tryggja að allir farmar fari í gegnum vélræna flokkun fyrst um sinn eða þar til búnaðurinn er kominn í fullan rekstur.

Nýjar vinnslulínur í móttöku- og flokkunarstöðinni munu samtals innihalda átta málmskiljur, sigti og annan búnað til að aðskilja lífrænan hluta heimilisúrgangsins frá ólífrænum efnum, s.s. plasti og öðru sem þar kann að leynast. Einnig verða þar tveir nýir vindflokkarar sem munu aðskilja létt efni, s.s. plast, pappír og textíl frá timbri, gleri og öðrum eðlisþyngri efnum. Lífræni úrgangurinn fer svo til gas- og jarðgerðar í GAJA, nýrri gas- og jarðgerðarststöð SORPU í Álfsnesi.

Nýjustu fréttir