Umhverfisstofnun hefur gefið út starfsleyfi fyrir GAJU, gas- og jarðgerðarstöð SORPU bs. Leyfið gildir til 20. október 2036.
Með tilkomu GAJU verður urðun á lífrænum úrgangi frá heimilum á höfuðborgarsvæðinu hætt. Með vinnslunni í GAJA eru bæði orkan og næringarefnin sem felast í lífrænum heimilisúrgangi endurheimt og næringarefnunum skilað aftur inn í hringrásarhagkerfið.
Að hætta að urða lífrænan úrgang frá höfuðborgarsvæðinu er gríðarstórt loftslagsmál sem dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda um sem nemur 90.000 tonnum af koltvísýringi á ári. Það samsvarar tæpum 10% af markmiðum stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030.
Fullvinnsla innandyra einsdæmi á Íslandi
GAJA var gangsett til prófana 6. ágúst 2020 eftir að hafa fengið undanþágu frá starfsleyfiskröfu. Öll vinnsla GAJU er innandyra. Það er gert til að lágmarka lyktarmengun frá starfseminni. Fullvinnsla moltu innanhúss eins og gert er í GAJU er einsdæmi á Íslandi.
Í frétt á vef Umhverfisstofnunar þar sem sagt er frá útgáfu starfsleyfisins segir meðal annars: „Umhverfisstofnunin hefur tekið ákvörðun um útgáfu á starfsleyfi til handa SORPU til reksturs gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi.
SORPA hefur heimild til að taka á móti allt að 30.000 tonnum á ári af lífrænum heimilisúrgangi og allt að 10.000 tonnum af fljótandi lífrænum heimilisúrgangi til gasvinnslu og jarðgerðar, þ.e. vinnslu á jarðvegsbæti, í gas- og jarðgerðarstöð í Álfsnesi.“
Starfsleyfi GAJU má nálgast á þessari hér .