Nú hefur SORPA hafið sérsöfnun á frauðplasti á öllum enduvinnslustöðvum.
Er það gert til að fá hreinna hráefni til endurvinnslu en erfitt er að endurvinna frauðplast þegar hefur blandast við annað plast.
Frauðplastið er endurunnið að hluta til hér á landi og framleitt úr því frauðplastkassa og einangrunarplast fyrir byggingariðnað. Þá er það einnig sent erlendis til endurvinnslu.
Mikilvægt er að frauðplastið sé hreint. Óhreint frauðplast, t.d. undan matvælum eða einangrunarfrauðplast með steypu o.þ.h. hefur ekki endurvinnslufarveg og fer því með blönduðum úrgangi. Þá þarf frauplastið að vera laust við öll aðskotaefni eins og pappír, límband eða steypu.
Frauðplastinu er safnað sérstaklega í stóra sekki sem má finna á öllum endurvinnslustöðvum SORPU. Athugið að ekki má setja annað plast, líkt um plastumbúðir eða hart plast ofan í þessa sekki.