Skýrsla um framtíðarlausn til meðhöndlunar á brennanlegum úrgangi í stað urðunar
Deila
Starfshópur um forverkefni til undirbúnings að innleiðingu framtíðarlausnar til meðhöndlunar á brennanlegum úrgangi í stað urðunar hefur skilað af sér skýrslu. Skýrsluna má lesa hér
Meðal helstu niðurstaðna starfshópsins eru:
Hátæknisorpbrennsla yrði reist á Suðvesturhorni landsins þar sem meira en 80% af úrganginum falla til.
Mat á staðsetningu leiðir í ljós að bygging hátæknibrennslunnar í Álfsnesi myndi fela í sér minnstan rekstrarkostnað þar sem kostnaður við flutning úrgangs til stöðvarinnar væri lægstur.
Hátæknibrennslan þarf að geta afkastað allt að 130.000 tonnum á ári. Hún mun framleiða rafmagn og heitt vatn en rekstrarkostnaði verður einkum mætt með hliðgjöldum.
Stofnkostnaður hefur verið metinn með grófum hætti, sem og rekstrarkostnaður. Kostnaður við byggingu brennsluna er áætlaður á bilinu 20 – 35 milljarðar króna.
Fyrir liggur að hliðgjöldin munu ráðast fyrst og fremst af því eignarformi sem verður fyrir valinu.
Verði brennslan alfarið í opinberri eigu er líklegt að hliðgjald þyrfti að vera 20 krónur á kíló en verði hún alfarið í einkaeigu er líklegt að hliðgjald yrði 40 krónur.
Í næsta áfanga verkefnisins þarf að stofna félag sem fær það hlutverk að halda áfram undirbúningsvinnu og þróa ítarlega viðskiptaáætlun um verkefnið.
Ef niðurstaða viðskiptaáætlunar gefur tilefni til liggur fyrir hverjir munu standa að undirbúningi og framkvæmd verkefnisins, og rekstri vinnslunnar. Einnig munu liggja fyrir samningar við sveitarfélög um ráðstöfun brennanlegs úrgangs í farveg vinnslunnar.