Chat with us, powered by LiveChat
17. mars 2022

Grenndarstöð við Ferjubakka lokað

Grenndarstöðinni við Ferjubakka hefur verið lokað. Ástæðan er langvarandi óþrif og misnotkun á stöðinni.

Grenndarstöðvar eru eingöngu ætlaðar fyrir flokkaðan úrgang, s.s. plast, pappír, pappa og gler, sem kemst inn um lúgur gámanna. Ekki er leyfilegt að skilja eftir heimilisúrgang, húsgögn, eða annan úrgang við gáma, líkt og raunin hefur verið á grenndarstöðinni við Ferjubakka um of langt skeið. Slíkum úrgangi á að skila á endurvinnslustöðvar SORPU.

Við biðlum til fólks að ganga vel um stöðvarnar og sjá til þess að úrgangur rati í réttan farveg.

Þau sem hafa verið að nota stöðina til að skila endurvinnsluefni í gámana er bent á nálægar grenndarstöðvar við Maríubakka, Mjódd og Stekkjarbakka. Næsta endurvinnslustöð SORPU er við Jafnasel.

Nýjustu fréttir