Forsvarsmenn Malbikstöðvarinnar og SORPU hafa skrifað undir samning þess efnis að Malbikstöðin kaupi árlega allt að milljón rúmmetra (Nm3) af hreinsuðu metangasi. Keypt magn Malbikstöðvarinnar samsvarar um helmingi af afkastagetu GAJU, gas- og jarðgerðarstöðvar SORPU. Kaupin eru liður í áframhaldandi stefnu Malbikstöðvarinnar að vera leiðandi á sínum markaði þegar kemur að umhverfisvernd.
„Við höfum alltaf gert hvað við getum til að hafa starfsemina sem umhverfisvænsta. Árið 2012 settum við til dæmis upp endurvinnslustöð fyrir malbik en þá hafði enginn áhuga á grænu malbiki og má segja að við vorum of langt á undan okkar samtíð. Nýja stöðin sem við byggðum svo upp að Esjumelum 2020 var reist með það fyrir augum að nota metan við framleiðsluna. Ég hafði áður séð mynd í fjölmiðlum þar sem verið var að brenna umframmagn sem var ekki hægt að koma í vinnu. Þá vissi ég strax að metan sem orkugjafi væri eitthvað sem þyrfti að koma inn í framleiðsluferli Malbikstöðvarinnar. Þessi tímamótasamningur við SORPU gerir okkur kleift að nota dýrmætu orku til að framleiða og leggja áfram hágæða malbik – grænasta malbikið á landinu“. (Vilhjálmur Þór Matthíasson, framkvæmdastjóri Malbikstöðvarinnar)
Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri SORPU, segir samninginn afar mikilvægan fyrir byggðasamlagið. „GAJA er stærsta loftslagsverkefni sem ráðist hefur verið í á höfuðborgarsvæðinu síðan heitt vatn leysti olíu og kol af hólmi við húshitun. Innleiðing hringrásarhagkerfisins er á fullri ferð hjá SORPU og er þessi samningur hluti af því. Föngun og nýting metans frá lífrænum úrgangi á urðunarstað og í GAJU er gríðarlega mikilvægt loftslagsmál. Metan er 80 sinnum skaðlegra en koltvísýringur þegar það sleppur út í andrúmsloftið og því afar mikilvægt að vinna lífrænan úrgang með réttum hætti í GAJU til að koma í veg fyrir losun gróðurhúsalofttegunda. Nýting metansins felur svo í sér enn aukinn ávinning.“
Eftirspurn eftir metani frá SORPU hefur að undanförnu aukist verulega.
Á myndinni að ofan má sjá Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóra SORPU, Vilhjálm Þór Matthíasson framkvæmdastjóra Malbikstöðvarinnar og Gunnar Dofra Ólafsson samskipta- og þróunarstjóra SORPU við undirritun samningsins.