Chat with us, powered by LiveChat
25. júní 2025

Glansandi grenndarstöðvar með hjálp Öryggismiðstöðvarinnar

Við hjá Sorpu, í samstarfi við Öryggismiðstöðina, vinnum þessa dagana að koma upp öryggismyndavélum við allar 65 grenndarstöðvar í Reykjavík og Kópavogi. Tilgangur með myndavélunum er að veita fælingarmátt og draga úr lélegri umgengni á stöðvunum. Eins nýtast þær vel til að fylgjast með hvaða stöðvum þarf að forgangsraða varðandi þrif og viðhald.

Nú þegar hafa verið settar upp 5 myndavélar og árangurinn leynir sér ekki, stöðvaranar eru snyrtilegri og almenn umgengni betri. 📹

„Myndavélarnar hafa greinilegan fælingarmátt. Fólk skilur rusl síður eftir á grenndarstöðvum sem eru vaktaðar en það gerði áður en við settum myndavélarnar upp. Myndavélarnar auðvelda okkar fólki líka vinnuna, því fram til þessa þurftum við að kanna hvort rusl hefði verið skilið eftir í óleyfi á grenndarstöðvum með því að mæta á staðinn. Núna getum við betur greint vandann og tekist á við hann með skilvirkari hætti,“ segir Gunnar Dofri, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu.

Auður Lilja Davíðsdóttir hjá Öryggismiðstöðinni bætir við að kerfið auki einnig öryggi starfsfólks og gesta með rauntímavöktun.

Með þessum aðgerðum tryggjum við bæði snyrtilegra umhverfi og skilvirkari þjónustu – til hagsbóta fyrir íbúa, starfsfólk og borgina í heild. ✨💚

083B61CB34E91A5294F0CFDAFC875A56709906909CD83610CDE5FD4A50BCFD65

Nýjustu fréttir