Chat with us, powered by LiveChat
26. apríl 2021

Glærir pokar og Góði hirðirinn opnar aftur á Hverfisgötu

Til að stuðla að meiri endurvinnslu og styðja við hringrásarhagkerfið eiga viðskiptavinir SORPU frá og með deginum í dag að koma með allan úrgang og endurvinnsluefni í glærum pokum á endurvinnslustöðvar. Viðskiptavinir hafa til 1. júlí til þess að klára svörtu ruslapokana og skipta þeim út fyrir glæra.

SORPA fagnar þrjátíu ára afmæli sínu í dag og í tilefni dagsins fá allir viðskiptavinir endurvinnslustöðvanna glæran poka að gjöf frá SORPU. Þetta er gert til að auðvelda fólki umskiptin og minna á mikilvægi glæru pokanna. Glærir pokar fást keyptir á endurvinnslustöðvum SORPU og í helstu stórverslunum á höfuðborgarsvæðinu innan skamms.

Af sama tilefni verður ný og endurbætt verslun Góða hirðisins við Hverfisgötu 94-96 opnuð aftur eftir framkvæmdir. Verslunin var opnuð 19. nóvember í fyrra í tilraunaskyni. Verkefnið gekk svo vel að ákveðið var að halda áfram rekstri verslunarinnar til að stuðla að auknum endurnotum og styðja enn frekar við hringrásarhagkerfið.

„SORPA fagnar þrjátíu ára afmæli sínu í dag. Það er stór dagur í lífi allra og okkur þykir á þessum tímamótum rétt að undirstrika enn stuðning okkar við hringrásarhagkerfið með þessum áherslum. Staðreyndin er því miður sú að meira en helmingurinn af öllu því sem viðskiptavinir okkar skila í gáminn fyrir blandaðan úrgang á sér endurvinnslufarvegi. Efnið sem fer í gáminn fer hins vegar beint í urðun. Glæru pokunum er ætlað að auðvelda starfsfólki endurvinnslustöðvanna að hjálpa viðskiptavinum okkar að skila endurvinnsluefnunum í réttan farveg. Aukin áhersla á endurnot með útibúi Góða hirðisins við Hverfisgötu er auk þess mikilvægur stuðningur við endurnot í hringrásarhagkerfinu,“ segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri SORPU.

Góði hirðirinn á Hverfisgötu hefur opnað aftur

Nýjustu fréttir