Chat with us, powered by LiveChat
16. desember 2025

Breyttur og bættur opnunartími endurvinnslustöðva

Gleðifréttir fyrir alla morgunhana og síðdegisflokkara! ⏰

Nú höfum við lengt opnunartíma á endurvinnslustöðvum Sorpu. Sævarhöfði, Breiðhella, Ánanaust, Jafnasel og Dalvegur eru nú opnar alla daga frá 9 til 19. 👏

Blíðubakki verður áfram opin 12:00-18:30.

Dósamóttakan í Ánanaust og Breiðhellu er opin frá 10 til 18.

Við erum stolt af þessu stóra skrefi í bættri þjónustu og hlökkum til að taka á móti þér á næstu endurvinnslustöð.

Takk fyrir að flokka! ♻️

SORPA Endurvinnslustöð

Nýjustu fréttir