Chat with us, powered by LiveChat
Málmur með skilagjaldi

Málmur með skilagjaldi

Endurvinnslan hf. er með móttöku fyrir skilagjaldsskyldar umbúðir á fjórum endurvinnslustöðvum SORPU.

Í Ánanaustum, Breiðhellu og Jafnaseli er vélræn flokkun og talning. ​Ekki þarf að flokka umbúðir eftir tegund né telja þær en umbúðir þurfa hins vegar að vera óbeyglaðar svo að flokkunarvélin þekki þær.

Í Blíðubakka þurfa umbúðir að vera flokkaðar eftir tegund, en þær mega vera beyglaðar. Leyfilegt er að koma með hámarki 500 einingar í hverri afgreiðslu.

Á öllum endurvinnslustöðvum SORPU eru Grænir skátar með gáma fyrir skilagjaldsskyldar umbúðir og fer þá ágóðinn í styrktarsjóð þeirra.

Hvað verður um efnið

Endurvinnslan hf. tekur á móti öllum skilagjaldsskyldum umbúðum sem berast til SORPU.

Allar helstu upplýsingar um hvað verður um efnið, ásamt ýmsum öðrum fróðleik, má finna á endurvinnslan.is/frodleikur.