Tilgangur
Tilgangur stefnu SORPU bs. um gervigreind er að tryggja ábyrga og siðferðislega notkun á gervigreindartækni. Samhliða því að veita starfsmönnum spennandi tól við sína iðju sem hvetja til nýsköpunnar göngum við úr skugga um það að við tryggjum einnig að öryggi og persónuvernd gagna sé ávallt í fyrirrúmi.
Skilgreiningar
- Gervigreind (AI):
Gervigreind vísar til þeirra aðferða í gervigreind sem nota gagnasöfn til að læra af og skapa ný, einstök gögn sem líkist en endurtekur ekki upprunaleg gögn. Slík gögn geta verið bæði gagnleg og hættuleg. - Skapandi gervigreind (Generative AI/GenAI):
Gervigreind sem getur búið til nýtt efni (s.s. texta, myndir, myndbönd, hljóð, forritunarkóða, tilbúin gögn og líkön af hlutum). - Ytri gervigreind:
Gervigreindartól aðgengileg öllum og veflausnir opnar öllum (utan tækniumhverfis SORPU). - Samþykkt gervigreind:
Gervigreindartól og kerfi með notkunarleyfi samþykkt af upplýsingatækniráði SORPU til notkunar fyrir starfsfólk SORPU bs (innan tækniumhverfis SORPU).
Áherslur
- Samræmi við aðrar stefnu og reglur:
Öll notkun gervigreindar skal samræmast upplýsingatæknistefnu, upplýsingaöryggisstefnu SORPU og reglum SORPU um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga - Öryggi og persónuvernd:
Starfsfólk má einungis vinna með gögn sem eru flokkuð sem opinber eða almennt aðgengileg í ytri gervigreindartólum. Trúnaðargögn, persónugreinanlegar upplýsingar, fjármálaupplýsingar eða öryggisferlar má eingöngu skrá í samþykktri gervigreind og í samræmi við ákvæði laga, þ.m.t. persónuverndarlöggjafar og eftir atvikum skjalfest verklag SORPU. - Ábyrg notkun:
Allar niðurstöður frá gervigreind skulu skoðaðar með gagnrýni og yfirfarnar fyrir notkun og leiðréttar ef þörf krefur. - Hlutleysi og réttlæti:
Gæta skal að því að forðast óæskilega hlutdrægni í niðurstöðum gervigreindar og vinna gegn mismunun. - Samþykki fyrir nýjum gervigreindartólum:
Starfsfólk þarf viðeigandi áskriftarleyfi og samþykki upplýsingatæknistjóra áður en ný gervigreindartóli eru tekin í notkun. - Gagnsæi og rekjanleiki:
Notendur og viðskipavinir skulu upplýstir um notkun gervigreindar þegar það á við. Allar ákvarðanir og niðurstöður sem byggja á gervigreind skulu vera rekjanlegar þannig að hægt sé að greina hvaða gögn og aðferðir lágu að baki. - Sjálfbærni:
Við val og samanburði á gervigreindartólum velur SORPA eins vistvænar gervigreindarlausnir og hægt er til að lágmarka kolefnisspor.
Fræðsla og vitund
SORPA veitir reglulega fræðslu um ábyrga og samþykkta notkun gervigreindar, áhættur tengdar henni og leiðbeiningar.
Endurskoðun
Stefnan er endurskoðuð árlega af upplýsingatæknistjóra í samráði við upplýsingatækniráð, eða þegar verulegar breytingar verða á lögum, áhættu eða tækni sem hefur áhrif á þessa stefnu.
Ábyrgð
Stjórn SORPU samþykkir og ber ábyrgð á þessari stefnu.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á framkvæmd og framgangi stefnunnar innan SORPU.
Fjármálastjóri ásamt stjórnendum starfsstöðva og efnisstrauma bera ábyrgð á útfærslu stefnunnar og þeim markmiðum og mælingum sem eru viðeigandi til að ná henni fram.
Starfsfólk, verktakar og birgjar eru ábyrgir fyrir að fylgja þeim reglum sem ætlað er að tryggja framkvæmd stefnunnar.
Stefna þessi var samþykkt til útgáfu af stjórn SORPU þann 14. janúar 2026."