Chat with us, powered by LiveChat
7. apríl 2026

Viltu moltu? 🌱

Laugardaginn 11. apríl hefjum við dreifingu á ókeypis moltu!

Í ár verður hægt að koma með kerruna í GAJA fyrsta laugardag hvers mánaðar, frá apríl – september, og fyrir minna magn verður hægt að sækja sér moltu á öllum endurvinnslustöðvum okkar frá 11. apríl til 5. september.

Hvar er GAJA? Smelltu hér til að fá leiðbeiningar á Google Maps.

Komdu með kerruna í GAJU!

Fyrsta laugardag í hverjum mánuði, frá apríl til september, verður hægt að koma til okkar í GAJA, Álfsnesi til að fá ókeypis moltu. Opið verður fyrir afhendingu á moltunni milli klukkan 12:00 – 14:00 dagana 11. apríl, 2. maí, 6. júní, 4. júlí, 2. ágúst og 5. september. Þú einfaldlega kemur með kerruna og við sjáum um að moka brakandi ferskri moltu ofaní.

Molta á öllum endurvinnslustöðvum.

Molta í kerru eða fötu – þú ræður! Ef þú þarft moltu í minna magni getur þú nálgast moltu á öllum endurvinnslustöðvum á tímabilinu 11. apríl til 5. september. Mundu bara að koma með skóflu og fötu.

Nýttu þér þetta frábæra tækifæri og nældu þér í moltu úr matarleifunum þínum!

Takk fyrir að flokka ♻️

SORPA Molta-gamur

Nýjustu fréttir