Þann 31. mars munu endurvinnslustöðvar okkar í Jafnaseli í Reykjavík og á Dalvegi í Kópavogi hætta að taka á móti rúmfrekum úrgangi vegna framkvæmda, svo sem múrbroti, timbri, innréttingum, flísum og húsgögnum.
Áfram verður tekið á móti almennu heimilisrusli á stöðvunum, sem verða skilgreindar sem litlar endurvinnslustöðvar. Þar verður tekið á móti um 30 flokkum í stað 40 eins og verið hefur undanfarin ár.
Áfram verður tekið á móti öllum úrgangi á stærri endurvinnslustöðvum okkar í Ánanaustum, Blíðubakka, Breiðhellu og Sævarhöfða. Við höfum jafnframt lengt opnunartíma á stöðvunum. Þær opna nú kl. 9:00 og eru opnar til kl. 19:00 alla daga, að undanskilinni stöðinni í Blíðubakka sem opnar kl. 12:00 og lokar kl. 18:30.
Eftirfarandi flokkar verða ekki lengur teknir við á Dalvegi og í Jafnaseli. Íbúar þurfa að fara með þá á stærri endurvinnslustöðvar:
Markmið breytinganna er að einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu á svæðunum. Þær byggja á vinnu starfsfólks SORPU, sveitarfélaganna og stjórnar SORPU.
Stöðvarnar hafa um tíma verið orðnar of litlar til að anna fjölda gesta og fjölda flokka. Við opnun þeirra árið 1991 var gert ráð fyrir átta flokkum, en í dag eru þeir orðnir mun fleiri.
Athugið að stöðvarnar í Jafnaseli og á Dalvegi verða lokaðar þann 30. mars vegna breytinganna.