Frá og með 1. mars verður bílnúmeralesari tekinn í notkun á endurvinnslustöðvum.
Lesarinn skannar bílnúmer og greinir hvort bíllinn sé skráður á íbúa á höfuðborgarsvæðinu eða aðra, til dæmis íbúa utan höfuðborgarsvæðisins eða fyrirtæki.
Bílar sem eru skráðir á fyrirtæki eða íbúa utan höfuðborgarsvæðisins greiða samkvæmt gjaldskrá fyrir fyrirtæki.
Engin breyting verður á gjaldtöku fyrir bíla sem eru skráðir á íbúa á höfuðborgarsvæðinu.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu greiða fyrir notkun á endurvinnslustöðvum í gegnum fasteignagjöld.
Úrgangur frá framkvæmdum fellur ekki þar undir og því greiða íbúar fyrir hann við losun.
Fyrirtæki, rekstraraðilar og íbúar utan höfuðborgarsvæðisins hafa hins vegar ekki greitt fyrir þjónustu endurvinnslustöðva og greiða því fyrir losun á flestum flokkum.
SORPA er í eigu íbúa sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu. Lögbundið hlutverk SORPU er að sinna móttöku frá heimilum.
Athuganir sýna að um 75% viðskiptavina endurvinnslustöðva SORPU eru íbúar á höfuðborgarsvæðinu og greiða aðeins í um 4% heimsókna. Um 25% viðskiptavina eru fyrirtæki eða íbúar utan höfuðborgarsvæðisins.
Innleiðing bílnúmeralesara er liður í því að tryggja sanngjarna skiptingu kostnaðar og að þjónusta SORPU sé í samræmi við hlutverk og fjármögnun þess.
Smelltu hér þú vilt vita meira - Bílnúmeralesari á endurvinnslustöðvum