GAJA
Í ágúst 2020 tók ný gas- og jarðgerðarstöð höfuðborgarsvæðisins til starfa og hefur hún hlotið nafnið GAJA. Bygging gas- og jarðgerðarstöðvarinnar í Álfsnesi er næsta stóra skrefið í umhverfismálum á höfuðborgarsvæðinu. Hún er í samræmi við stefnu sem sveitarfélögin hafa mótað í sameiginlegri svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2009-2020. Lífrænu efnin sem falla til á höfuðborgarsvæðinu verða unnin í stöðinni í metangas og jarðvegsbæti, en málmar og önnur ólífræn efni svo sem plast fara til endurnýtingar.
Hafist var handa við byggingu GAJA þann 9. október 2018. Vinnslutækni er byggð á einkaleyfi frá Aikan Solum AS í Danmörku en stöðin er teiknuð af Batteríið Arkitektar og er verkfræðistofan Mannvit tæknilegur ráðgjafi. Stærð hússins er 12.800 m2 og mun stöðin anna allt að 35.000 tonnum af lífrænum heimilisúrgangi. Markmiðið er að nýta sem best allan lífrænan úrgang sem til fellur á heimilum á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki aðeins nýtast næringarefnin sem felast í lífrænum heimilisúrgangi, heldur einnig orkan sem verður til við niðurbrot úrgangsins. Ársframleiðsla stöðvarinnar verður annars vegar um 3 milljónir Nm3 af metangasi, sem hægt er að nýta sem eldsneyti á ökutæki, og hins vegar 10-12.000 tonn af jarðvegsbæti, sem hentar vel til landgræðslu. Þegar gas- og jarðgerðarstöðin verður komin í gagnið munu yfir 95% heimilisúrgangs á höfuðborgarsvæðinu fara til endurnýtingar.