Góði hirðirinn - styrkumsókn
Góði hirðirinn-aðalsíða
(12:10 22/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: N 7,5 m/s
Hitastig: 6,37 °C
22. maí 2012

Framkvæmdastjóri SORPU svarar fyrirspurnum um metan

Mikil umræða hefur verið undanfarna daga um framleiðslugetu metans í Álfsnesi.
Mbl.is sagði frá því að margir þeir sem hafa keypt sér metanbíla eða látið breyta bílum sínum hafa lent í vandræðum með að nálgast eldsneytið, sem er aðeins framleitt á einum stað á landinu, í Álfsnesi. Björn H. Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu segir að samkvæmt nýjustu útreikningum muni framleiðslan þar ná hámarki árið 2013.
„Það er nú ekki ennþá kominn sá dagur að við höfum ekki getað framleitt nóg fyrir N1," segir Björn. Vandamálið sé ekki framleiðslan heldur áfyllingarbúnaðurinn, sem anni ekki mestu álagstímum og því myndist flöskuháls.
Björn tekur undir það sem Hermann Guðmundsson sagði í samtali við Mbl.is, að hugsanlega sé ábótavant að upplýsa fólk sem breyti metanbílum um það að metanið sé takmörkuð auðlind. Eins og er, er framleitt metan úr haugnum í Álfsnesi sem knúið getur 3000-4000 smábíla.
„Við höfum aldrei haldið því fram að við getum skaffað metan fyrir allan ökutækjaflotann, en fólk þarf ekkert að örvænta. Það er nóg gas ennþá,“ segir Björn.
Stefnt er að því að opna gasgerðarstöð í Álfsnesi, sem gæti tekið til starfa árið 2014. Mætti þá framleiða þar metan fyrir 3000-4000 smábíla til viðbótar.
Björn segir mikilvægt að ríkið komi hið fyrsta á laggirnar fjárfestingarsjóði vegna uppbyggingar innviða fyrir vistvænt eldsneyti. Hann telur metanið komið til að vera enda sé margþættur jákvæður ávinningur af notkun þess. „Það er mikill áhugi fyrir þessu, en svo eigum við eftir að sjá hvort áhuginn nær út í framkvæmdir.“
Sjá grein á mbl.is, http://mbl.is/frettir/innlent/2012/05/16/ymislegt_ad_gerjast_i_metaninu/

Til baka