Góði hirðirinn - styrkumsókn
Góði hirðirinn-aðalsíða
(10:00 19/6)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: A 4,8 m/s
Hitastig: 12,06 °C
07. maí 2012

SORPA tekur þátt í ljósmyndaverkefni

SORPA tók þátt í skemmtilegu verkefnið með Sigurði Ólafi Sigurðssyni ljósmyndanema.  Sigurður var að ljúka ljósmyndanámi við Tækniskólann í Reykjavík og ákvað að gera verkefni tengda þeirri hugmynd, hvað verður um sorpið sem þú hendir í ruslið heima hjá þér.

Safnaði hann saman viku skammti af rusli frá fjögurra manna fjölskyldu, og tók myndir af því.  Hann litaði myndina til að sýna fram á hversu mikið af þessu gæti farið í endurvinnslu, næst sýndi hann fram á magnið sem er urðað í Álfsnesi.  Markmiðið er að sýna fram á hversu miklu magni fólk er að henda sem það gæti verið að flokka og senda til endurvinnslu.

Hefur sýningin hangið uppi í Kringlunni undanfarnar tvær vikur.

Sjá nánar á Facebook síðu SORPU, http://www.facebook.com/Sorpa.is

Til baka