05. janúar 2012
Almanak SORPU 2012
Almanak SORPU fyrir 2012 er komið út. Er hægt að nálgast það á endurvinnslustöðvum SORPU.
Myndirnar sem prýða almanak SORPU árið 2012 eru verk nemenda í skólum og leikskólum sem eru þátttakendur í verkefninu Skólar á grænni grein. Verkefnið er alþjóðlegt umhverfis menntaverkefni sem Landvernd hefur umsjón með. Skólarnir eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á þemað úrgangur í sinni vinnu að umhverfismálum.













