Ný gjaldskrá tekur gildi 1. janúar 2012
Ný gjaldskrá SORPU tekur gildi 1. janúar 2012, sjá gjaldskrá.
Eftirfarandi meginbreytingar verða á gjaldskránni:
•Almenn verðlagshækkun á annað en endurvinnsluefni um 5,69%
•Sláturúrgangur og skyldur lyktarsterkur úrgangur hefur fengið nýjan farveg og skal berast í lausu að öðru jöfnu samanber neðangreint en heldur sama verði (eftir verðlagsbreytingu).
Um sláturúrgang.
Verið að skerpa á skráningu og auka skilvirkni í móttöku á lífrænum úrgangi og bæta aðstöðu fyrir viðskiptavini og starfsmenn.
*Opnuð hefur verið ný móttaka fyrir lyktarsterkan úrgang hvert sláturúrgangi er beint. Til þess þarf að hann að berast í lausu, en ekki í stórsekkjum eins og venja hefur verið hingað til.
*Móttakan var opnuð formlega 1.desember síðastliðinn og því hefur verið unnið eftir eldra vinnulagi hingað til á árinu þrátt fyrir að nýtt vörunúmerakerfi hafi verið tekið í notkun 1.01.2011.
*Eldra vinnulag fól í sér að hluti sláturúrgangs var skilgreindur sem véltækur úrgangur (í stórsekkjum).
*Ekki er tekið á móti sláturúrgangi í Álfsnesi frá og með 01.01.2012 á öðru verði en fyrir sláturúrgang. Annað er ekki í samræmi við starfsemi SORPU sem vottað fyrirtæki samkvæmt ISO9001.
*Ef úrgangshafi kýs að koma með hann í stórsekkjum skulu þeir vera tryggilega lokaði svo hægt sé að meðhöndla þá með klemmu sem bagga, og vera um 500 kg hver og að hámarki 600 kg svo þeir springi síður. Ef þeir springa skal leggja á álagsgjald samkvæmt móttökureglum SORPU ofan á verð fyrir sláturúrgang í lausu.
SORPA þakkar viðskiptin á árinu sem er að líða og við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs nýs árs.













