Góði hirðirinn-aðalsíða
(20:50 22/2)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: A 1,2 m/s
Hitastig: 2,73 °C

23. desember 2011

Málmhluti má nú setja beint í sorptunnuna

Flokkunarstöð SORPU í Gufunesi hefur tekið í notkun búnað sem flokkar málmhluti sjálfvirkt, með segulafli, frá öðru sorpi. Því þurfa heimili á höfuðborgarsvæðinu og önnur svæði sem SORPA þjónar í sorphirðu, ekki lengur að vera með sérstaka flokkunartunnu undir smáa málmhluti.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg er þeim tilmælum þó beint til almennings að héðan í frá verði málmhlutir, líkt og niðursuðudósir, álpappír, skrúfur, naglar og þess háttar, settir beint ofan í sorptunnuna en ekki í poka með öðru sorpi.

Málmar eru um þrjú prósent af heimilissorpi, að því er fram kemur í tilkynningunni, og alls nást um 60 prósent af öllum málmi úr sorpinu með þessari nýju aðferð.

Um átta til tíu tonn af járni og um eitt tonn af öðrum málmi er flokkað frá með þessum hætti á viku. Afraksturinn er svo sendur úr landi, aðallega til Bretlands og Spánar, til endurvinnslu.
Úr málminum er svo framleidd ýmis vara, svo sem grill og garðhúsgögn og þar fram eftir götunum. – tekið af visir.is

 Hér má finna sjónvarpsfrétt Fréttastofu Stöðvar 2 sem birtist þann 19.desember síðastliðinn.

Til baka